Skátafélagið Skjöldungar auglýsir eftir starfsfólki í sumar.
Skjöldunga vantar skólastjóra við Útilífsskólann en verksvið hans er m.a. umsjón með sumarnámskeiðum, verkstýring annarra starfsmanna, innheimta námskeiðsgjalda, samskipti við SSR og önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur eru að einstaklingurinn geti unnið sjálfstætt, sé drífandi í hóp, sé ábyrgur, stundvís, heiðarlegur og reyklaus. Lágmarksaldur er 20 ára.
Skjöldunga vantar einnig starfsfólk til vinnu við Útilífsskólann í sumar, en verksvið þeirra er umsjón með þátttakendum, skipulagning og framkvæmd námskeiða í samráði við skólastjóra ásamt öðrum tilfallandi störfum.
Laun og vinnutími er samkv. Launaskrá Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 6.apríl. Ráðningartíminn er frá fyrstu viku í júní fram í miðjan ágúst með 2ja vikna hléi í kringum landsmót og verslunarmannahelgi, annars eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist á: magnusdk@skjoldungar.is








