Skjöldungar.is

skjoldungar@skatar.is

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Skátafélagið Skjöldungar

Sveitarútilega dróttskáta 24. - 26. Feb.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Sveitarútilega í Kút á Hellisheiði 24. - 26. Feb.


Farið verður í skála á Hellisheiði sem heitir Kútur. Ekkert rafmagn eða vatn er í skálanum en
gashitarar eru í skálanum. Skálinn er í toppsnandi og svefnpláss í rúmum er fyrir 10 manns.

Við munum leggja af stað frá skátaheimilinu á föstudagskvöldið kl.19:00 og viljum biðja foreldra að skutla okkur upp á heiði

ATH. það er mikill snjór svo þið verðið að koma vel klædd, og verið tilbúin til að labba soldið að skálanum.

Útbúnaðarlisti

Gönguskór/Strigaskór/Inniskór
Hlýja úlpu
Snjóbuxur
Ullarsokka eða aðra hlýja sokka
Húfu og vettlinga
Ullarpeysa/flíspeysa
Ullarnærföt (föðurland)
Mataráhöld
Vasaljós/Höfuðljós
Svefnpoka
Dýnu (þeir sem eiga, það er svefnpláss fyrir 10 manns aðrir þurfa að vera á gólfi)
Auka buxur (ekki gallabuxur), peysu, sokka og nærföt
Mat fyrir alla helgina, nema laugardags kvöldið

Annað sniðugt til að taka með

Vasahnífur
Rassaþota
Skíðagleraugu
Spil

 

Afmæliskvöldvaka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Afmæliskvöldvakan verður haldin þriðjudaginn 21. febrúar klukkan 18:00 í skátaheimilinu.

Mætum öll í skátabúning :)

Síðast uppfært: Mánudagur, 20. Febrúar 2012 20:37
 

Fjáröflun fyrir landsmót 2012

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Næsta fjáröflun fyrir Landsmót skáta verður dósasöfnun laugardaginn 3. mars.
Við ætlum að hittast í skátaheimilinu kl 11 og vonumst við til að sjá sem flesta.
Þeir sem ekki hafa skráð sig á mótið er bent á þennan link:
http://secure.skatar.is/jm/Register/690/AFBD1703A76D02853F4231B65DFA3AA8

Kveðja
foringjar
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 16. Febrúar 2012 14:56
 

Heiðursfélagi farin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sunnudaginn 12. febrúar andaðist Unnur Sch. Thorsteinsson en Unnur og eftirlifandi eiginmaður hennar Sigmundur Guðmundsson voru virk í skátastarfi alla tíð og eiga Skjöldungar þeim mikið að þakka fyrir góðan stuðning í gegnum tíðina.

Útförin verður frá Áskirkju þriðjudaginn 21. febrúar kl:15.00

Unnar verður sárt saknað og votta Skjöldungar Sigmundi og fjölskyldu dýpstu samúð.

Síðast uppfært: Föstudagur, 17. Febrúar 2012 13:05
 

Drekaskátar vor 2012

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú er drekaskátastarfið komið á fullt og í dag var ljósmyndamaraþon á dagskránni sem virkar þannig að börnunum eru úthlutuð ákveðin þemu sem þau eiga að festa á filmu:) Í næstu viku munum við svo búa til plakat með myndunum og hengja upp á vegg! Dagskráin mun birtast hér á síðunni og á www.skjoldungar.com innan skamms. Á næsta fundi verða bakaðar möffins í appelsínuberki úti á grilli eða eldi svo það er margt um að vera hjá okkur:)
Nýir skátar eru velkomnir! Drekaskátaaldurinn er 7-9 ára og verða börnin að vera í 2. bekk í grunnskóla til þess að mega byrja:)

Síðast uppfært: Mánudagur, 16. Janúar 2012 18:17
 


Síða 1 af 14